storamamma
Thursday, February 16, 2006
.............!!!!!!
Nú þegar líður að vori er eins og .....hvaða bull! Það er rokrassgat úti!!!! Hvín í öllum gluggum hjá mér, yfirdýnan af rúminu fauk af snúrunni í gær...en endaði sem betur fer í runnanum við húsið svo ekki fór hún nú langt og ég sit inni með eina veika dóttur og einn sofandi son. Vantar eitthvað til að láta tímann líða...spólur! Ekki nema maður setjist niður og reyni að ljúka einhverri af þessari handavinnu sem ég hef einhvern tíman byrjað á...en ekki klárað!
Til hamingju kúlur og mæður/feður þeirra! (alltaf að heyra af einhverjum nýjum kúlukrílum). Þið takið þetta til ykkar sem eiga! Vonandi að allt gangi vel á næstu mánuðum!
Ég er trassi "dauðans" (orð sem var notað í gamla daga :) )! Mér hefur ekkert orðið ágengt í þessum skóla! Verð að fara að sparka í afturendann á sjálfri mér.... enginn gerir það fyrir mig!
Erum að fara í leikhús á sunnudaginn við Viðar. Heitir "NAGLINN". Hefur einhver heyrt um þetta? Um hvað er það? Þetta verður spennandi, fara í leikhús og vita nákvæmlega ekkert um leikritið! Svona eins og óvissuferð. Geðgt!!!!!
Wednesday, February 08, 2006
smá leti....
Það er óneitanlega langt síðan ég bloggaði síðast...einni var heldur farið að leiðast þessi bið og tjáði sig með það...takk Inga!! Svo nú ætla ég að reyna að spýta í lófana og sjá hvað setur...!
Haldiðið ekki að ég sé bara byrjuð í skóla...fjarnámi...það er alveg skelfilega fjarlægt, hef ekki enn lokið við fyrstu kaflana í bókunum tveim!!! Einhver lægð búin að grúfa yfir selfossi síðustu daga. En nú birtir óðum til og þá á maður vonandi smá aukaorku til að takast á við námsbækurnar.
Svefn hefur verið af skornum skammti undanfarnar vikur...börn eru yndisleg. Nema hvað, nú í nótt sváfu bæði börnin alla nóttina og ég hefði nú átt að geta sofið...nei! Ég beið og beið og beið eftir því að annað þeirra myndi vakna...það hlyti nú bara alveg að fara að gerast (hugsaði ég í alla nótt)...en nei, þau bara sváfu!!! Ég var ekkert smá svekkt þegar ég vaknaði/áttaði mig á því að það var kominn morgun!
Hvernig er með karlmenn/stráka...hvenær þroskast þessir einstaklingar? Aldrei! er svar sem ég er farin að hallast að. Þeir strákar sem ég þekki eru með eindæmum þrjóskir og kjánalegir! En er það kannski svo með þá alla? Þeir eru allt öðruvísi en við æðra kynið að öllu leiti! Það eina sem þeir hafa umfram okkur er að geta migið standandi án þess að sóða sig of mikið út. Við getum alveg pissað standandi en það er snyrtilegra að sitja! Það er líka hollara fyrir okkur öll af pissa sitjandi...hollara fyrir blöðruna, þá nær hún að tæmast alveg! Svo við erum fullkomnari að öllu leiti!
Æ nú nenni ég þessu ekki lengur... verð að fara að læsa augun við námsbækurnar!!! Þangað til næst...
Thursday, December 15, 2005
Komin heim og allt gengur vel
jæjæ... þá erum við komin heim og allt gengur vel. Honum syni mínum lá nú aldeilis á að koma í heiminn loksins þegar hann ákvað að það væri tímabært! Ég ákvað að fara uppá spítala 1.des og láta skoða mig...athuga hvort eitthvað væri að gerast...náði í stelpuna á leikskólann um hálf fimm og tók hana með mér uppá spítala, og drengurinn fæddur hálf átta.
Við erum búin að vera heima síðan 5. og allt gengur ljómandi. Hann dafnar vel.
Gott fólk, jólakortagerðin hefur nottla verið í pásu þennan tíma en nú fer ég að spýta í lófana og þau ættu að vera tilbúin á milli jóla og nýárs...ef allt gengur upp!! Smákökurnar eru að verða búnar, og jólagjafirnar komnar í umbúðir. Jólin eru greinilega að koma!
Thursday, November 24, 2005
Óska eftir....!!!!
Hef heyrt að sæði eigi að koma fæðingu af stað!! Ég óska hér með eftir sæði í glasi. Ætli eigi að drekka það eða setja það í önnur göt?? Skiptir ekki... bara nægu magni til að fylla öll göt!!
Annars eru nú alveg 3 dagar enn þangað til ég get farið að bíða... á meðan er ég búin að setja jólaljós í 2 glugga, var að kaupa fleiri seríur til að setja í alla gluggana mína og á jólatréð...það er nú samt ekki komið upp ennþá, þ.e.a.s. jólatréð. Ekki enn byrjuð að baka en ætla að láta verða af því í dag að. Ekkert hefur bæst við af jólakortum...þið hin fáið bara jólakort á næsta ári!! Er það ekki í lagi??
Læt ykkur vita um leið og eitthvað gerist!!!
Monday, November 21, 2005
jæja.........
Og ekkert gerist...!!! Hvað gengur skrítnar en "skjaldbaka sem gengur eins og hæna"? Svar: ÉG!!
Það þyrfti að vera færiband um íbúðina svo ég geti farið um...!!! Það er ekkert smá fyndið örugglega að horfa á mig staulast um að reyna að taka til eftir dóttur mína!! Er að pæla í að fara að færa til húsgögn... þarf að koma tölvunni á nýjan stað svo ég geti sett gömlu hillusamstæðuna hennar mömmu upp inní stofu. Svo þarf að þvo þvott og strauja og ekki má gleyma jólakortunum... búin með 12!!! Þannig að það er pottþétt mál að það fá allavega tólf heppnir jólakort frá okkur í smáratúninu!!!
Fór í bæinn í gær...Vantaði svona hitt og þetta fyrir nýja krílið, sokkabuxur og annað... fattaði líka að Sóleyju Björk vantaði sæng þegar barnið kemur í heiminn, sem betur fer í tæka tíð... ekki hefði ég getað látið þau deila þessari pínulitlu sæng!!!
Ætla að fara að reyna að gera eitthvað af viti núna!!!
Wednesday, November 16, 2005
ein að fara yfirum...!!
Ég er ekki frá því að ég sé að missa það.... ekki nóg með allt föndrið sem ég er með fyrir heldur var ég að bæta meiru við... hafa einhverja fjölbreytni í þessum jólakortum sem ég sendi ykkur! Ekkert kort verður eins...
Svo var ég að koma úr skoðun. Ljósann bað mig vinsamlega að fara heim og slappa af því henni fannst ég vera svo eigu leg... einnig bað hún mig um að skila inn þvagprufu í rannsókn á morgun...svona miðbunu pissi...ef þið vitið hvað ég á við!! Ég vissi það ekki sjálf fyrr en mamma sagði mér það áðan. Þá á það víst að vera eitthvað hreinna!!!! Ekki það að piss sé eitthvað hreint... ekki finnst mér það allavega!!
En nú er um að gera að fara að snúa sér að jólkortagerð svo hægt sé að byrja jólabaksturinn fyrir áramót!!!!
Tuesday, November 15, 2005
ein alveg við það að springa!!!
jæjæ... þá þykist ég vera orðin "Bloggari"!! HAHAHAHA þetta verður eitthvað skrautlegt...
Mér líður eins og eldgamalli skjaldböku sem gengur eins og gömul hæna!! And I should know, því ég vann með gamlar varphænur!!! Það eru samt 2-4 vikur eftir... fyrir ykkur sem ekki vitið... já ég er ólétt og á að eiga 27. næstkomandi... vonandi!!!
Ég er hætt að vinna og nú bíð ég bara og bíð og bíð og bíð og svo sauma ég.... og prjóna og sauma út og er að verða geðveik! Ekki má gleyma jólakorta-gerðinni... ein sem ætlar aldeilis að vera dugleg í föndrinu...finnst ykkur ekki??

